Tíðabikar er heilsusamlegri, auðveldari og umhverfisvænni kostur á tíðablæðingum. Hann er úr mjúku silikoni sem hægt er að nota aftur og aftur á meðan blæðingar standa yfir. Bikarinn safnar tíðablóðinu í stað þessa að sjúga það upp eins og t.d tíðartappar virka. Bikarinn má nota í allt að 12 tíma í senn.

Það er auðvelt að nota tíðabikarinn . Bikarinn er "brotin" saman á brúnunum (sjá leiðbeiningarmyndband hér að neðan) og setur hann upp. Bikarinn á að sitja sem neðst í leggöngunum eða þar sem það er þægilegast fyrir hverja og eina (mun neðar er túrtappar). Tíðabikarinn opnast uppí leggöngunum og myndar þannig "skál" sem kemur í veg fyrir að tíðarblóðið fari framhjá. Það gæti tekið nokkrar tilraunir að finna réttu stöðuna á bikarnum fyrir hverja og eina konu.
Bikarinn er tilvalið að nota t.d í sundi, á íþróttaæfingum og á nóttunni.
Til að fjarlægja bikarinn er klemmt gætilega um neðanverðan bikarinn og hann dreginn varlega út, hann tæmdur í klósett eða vask, skolaður og settur aftur upp.
Finnur þú fyrir bikarnum? Nei. Þegar fundið hefur verið út úr réttri stöðu á bikarnum þá finnur maður ekki fyrir honum.
Langa totann er til að hjálpa til við að ná um miðjan bikarinn þegar þú tæmir hann. Það má klippa totuna niður í þá lengd sem hentar best. Sama lengd hentar ekki endilega öllum konum. Sumar konur þurfa t.d að klippa alla totuna burt.
Til að tæma bikarinn er t.d hægt að taka með sér litla vatnsflösku til að hreinsa bikarinn. Einnig er hægt að þrífa hann með þurrku. Það er líka vert að minnast á að ekki þarf að tæma bikarinn eins oft og skipt er um t.d túrtappa eða dömundi þar sem hann heldur meira tíðablóði. Hægt er að þrífa bikarinn betur þegar heim er komið.
Eins og þegar notaður er túrtappi er mikilvægt að þrífa hendurnar vel áður en bikarinn er settur upp eða tekin út úr leggöngunum. Á meðan blæðingar standa yfir er óhætt að nota vatn til að þrífa bikarinn eða nota sápu án ilmefna. Sumar konur velja að þrífa bikarinn mjög vel á milli blæðinga með því að sjóða hann í vatni eða skola hann í mildu, sótthreinsandi efni. Einnig er hægt að nota OganiWipes sem eru sérhannaðar fyrir þrif á tíðabikurum.
Nei tíðabikarar koma yfirleitt í tveimur stærðum (fer eftir framleiðendum); A og B. Stærð A er fyrir konur sem hafa ekki fætt börn eða fætt barna með keisara og stærð B er fyrir konur sem hafa fætt barn (legggangafæðing).
