Hrein vara
Vivag
Vivag sápa fyrir kynfærasvæðið 400 ml.
400 mlVörunúmer: 10067035
Verð1.998 kr.
1
Frí heimsending ef verslað er fyrir meira en 9.900 kr.
Vivag® sápa fyrir viðkvæma líkamshluta er mild og hentar vel fyrir viðkvæma húð, auk þess að hafa verndandi áhrif. Hún hentar því vel til daglegra þvotta á kynfærasvæðinu. Vivag® sápa fyrir viðkvæma líkamshluta þvær ekki aðeins húðina. Hún er einnig hrein afurð, laus við rotvarnarefni (einnig paraben), ilmefni og litarefni. Hvað er hrein vara? Nánar hér
Tíður þvottur á kynfærasvæði með sterkum sápuefnum svo sem sturtusápu, venjulegri handsápu, hársápu o. fl. getur leitt til ertingar, sviða og kláða í húðinni. Húðin getur einnig þornað og jafnvel sprungið. Því ætti ávallt að nota milda, til þess gerða sápu með lágt sýrustig (um það bil pH 4, eins og á kynfærasvæðinu), án ilmefna, litarefna og rotvarnarefna, svo eðlilegt jafnvægi svæðisins raskist ekki.
Húðin er gerð úr nokkrum lögum. Efsta lagið (yfirhúðin) er úr hornfrumum og varnarefnum (fituefnum). Ef sterkar sápur eru notaðar er hætta á að ójafnvægi myndist í húðinni og að mikilvæg fituefni, sem vernda húðina og halda henni rakri, séu þvegin burt.
Aqua, Cocamidopropyl Betaine, Lauryl Glucoside, Lactic Acid, Coco-Glucoside, Glyceryl Oleate, Glycerin, Vaccinium Macrocarpon Fruit Extract, Aloe Barbadensis Leaf Juice, Tocopherol, Xanthan Gum, Hydrogenated Palm Glycerides Citrate, Citric Acid, Sodium Benzoate, Potassium Sorbate, Sorbic Acid.