Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, mest 12 stk (2 pakkar) handa einstaklingi
Dulcolax inniheldur bisakódýl sem hefur hægðalosandi áhrif. Það ertir þarmavegginn og örvar með því hreyfingar í þörmunum. Bisakódýl er notað til að tæma þarma fyrir skurðaðgerðir, fæðingar eða speglun.
Það er einnig notað við tilfallandi hægðatregðu, sér í lagi hjá rúmliggjandi og eldra fólki. Ef bisakódýl er notað í langan tíma getur það skaðað eðlilegar hreyfingar í þörmunum og sjúklingur orðið háður notkun hægðalyfja.
Notkun:
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.