Creon 35.000 inniheldur blöndu af meltingarensímunum lípasa, próteasa og amýlasa sem unnin eru úr dýraríkinu.
Í líkamanum framleiðir briskirtillinn þessi meltingarensím sem eru nauðsynleg fyrir eðlilegt niðurbrot fitu, kolvetna og próteina úr fæðunni. Ef skortur verður á þessum meltingarensímum í líkamanum, t.d. vegna vanstarfsemi briskirtils, veldur það truflun á meltingu og nýtingu fæðuefna og getur það m.a. leitt til niðurgangs og vítamínsskorts. Creon 35.000 er notað við skorti á þessum meltingarensímum frá brisi.
Notkun:
1 hylki í senn við upphaf hverrar aðalmáltíðar. Hylkin gleypist heil með vatnsglasi.
Má ekki tyggja þau né kremja. Hylkin má opna og blanda innihaldinu saman við vökva eða mat. Ekki má blanda innihaldinu í vatn, mjólk eða heitan mat.