Cetirizín, virka efnið í Cetirizine Alvogen, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má minnka einkenni ofnæmis eða koma í veg fyrir þau.
Cetirizín er notað gegn ofnæmi, ofnæmisbólgum í nefi og einnig útbrotum og kláða af völdum histamíns. Ólíkt mörgum ofnæmislyfjum hefur cetirizín óveruleg róandi og sljóvgandi áhrif.
Notkun:
Fullorðnir og börn eldri en 6 ára sem eru þyngri en 30 kg: 10 mg á dag (ein tafla). Börn eldri en 6 ára sem eru léttari en 30 kg: 5 mg á dag (hálf tafla).