Deslóratadín, virka efnið í lyfinu, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má draga úr einkennum ofnæmis eða koma alveg í veg fyrir þau.
Dasergin er gefið við ofnæmisnefkvefi og slær á ofnæmiseinkenni eins og hnerra, nefrennsli, kláða, tárarennsli og roða í augum. Lyfið er einnig notað við ofsakláða. Deslóratadín hefur ekki róandi eða sljóvgandi áhrif.
Notkun: