Cetirizín, virka efnið í Histasín, hindrar áhrif histamíns í líkamanum, en histamín er það efni sem veldur helstu einkennum ofnæmis. Með því að koma í veg fyrir virkni histamíns má minnka einkenni ofnæmis eða koma í veg fyrir þau.
Cetirizín er notað gegn ofnæmi, ofnæmisbólgum í nefi og einnig útbrotum og kláða af völdum histamíns. Ólíkt mörgum ofnæmislyfjum hefur cetirizín óveruleg róandi og sljóvgandi áhrif.
Notkun:
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.