Heimilt er að selja takmarkað magn lyfsins í lausasölu, mest 50 stk (1 pakki) handa einstaklingi
Íbúfen er bólgueyðandi lyf með verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Íbúfen er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu, höfuðverk, mígreni og sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir. Lyfið er einnig notað til að lækka hita.
Virka efnið íbúprófen dregur úr myndun prostaglandínefna í líkamanum, en þau valda meðal annars bólgumyndun.
Fullorðnir: 400 mg í senn, mest 3svar á dag.
Unglingar 12 ára og eldri og yfir 40 kg: 200-400 mg í senn, mest 3svar á dag.
Aðrar skammtastærðir skal aðeins taka í samráði við lækni.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vel.