Treo inniheldur blöndu tveggja virkra innihaldsefna sem vinna saman til þess að auka verkjastillandi eiginleika lyfsins. Annars vegar inniheldur Treo asetýlsalicýlsýru, og hún er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi. Hins vegar koffein, með væg örvandi áhrif á heilann, en nánar tiltekið dregur það saman heilaæðar og eykur verkjastillandi verkun asetýlsalicýlsýrunnar.
Treo hentar vel við vægum verkjum, sérstaklega ef bólga er til staðar. Þá er Treo notað til að lækka sótthita og við vægu mígreni.
Notkun:
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega.