Hér er að finna fjölda nytsamra ráða og svörum við þeim fjölmörgu spurningum sem upp geta komið í aðdraganda fæðingar. Höfundur bókarinnar, Inga María Hlíðar Thorsteinson ljósmóðir, hefur í störfum sínum safnað að sér umfangsmiklum fróðleik og útkoman er sérlega vönduð og áhugaverð bók.
Það er í höndum foreldra að undirbúa sig fyrir þessa einstöku lífsreynslu. Með góðum undirbúningi, áreiðanlegum upplýsingum og hófstilltum væntinum eru auknar líkur á að foreldrarnir öðlist ánægjulega upplifun af fæðingunni.